Hér ríkir ást og friður
17.04.2008 13:01:43 / Magga

Jæja þá ég skal blogga smá....


God ég er að deyja hérna.

Er að læra fyrir tölvuprófið.... boring..... var að lesa fyrir stjórnun í gær....  það er ekki bara boring neiiiii það er líka algjör dauði. Hef sjaldan verið með jafn þurra bók. og ekki bætir að "íslensku glærurnar" eru bara eiginlega ekki á íslensku flestar þeirra allavega :evil:

ég er búin að komast að því að mér finnst ekkert skemmtilegt að blogga... kannski ástæða fyrir því að ég geri það svona hrikalega sjaldan.

Það sem er semsagt að taka við núna er endalaus próflestur í svona sirka mánuð. Svo kemur sumarið :)
Sjett hvað ég get ekki beðið eftir sumrinu. hlakka nú samt ekki til ef ég fæ enga vinnu.... er ekki búin að fá nema tvö svör.... hvar eru hin svörin mín???? já maður spyr sig...

nenni ekki meiru, ætla að halda áfram með tölvur...

bless í bili
Magga

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 23:50:36 / Rósa

Smá djókur, fyrst að þið nennið aldrei að blogga!

Einu sinni var góðhjörtuð stúlka, sem var svo ófríð, að hún þorði varla út á götu nema að næturlagi. Hún hírðist með kettinum sínum í ósamþykktri kjallaraíbúð við Hverfisgötuna, og grét örlög sín og vonsku heimsins.

Eina nóttina, þegar hún var á gangi meðfram Sæbrautinni, mætti hún þorski, sem lá spriklandi og hjálparvana á göngustígnum. Nú var stúlkan bæði góðhjörtuð og mátti ekkert aumt sjá sem og heiðarleg, og þar sem hún átti engan kvóta, þá sá hún, að hún yrði að koma þorskinum aftur lifandi í sjóinn. Hún klöngraðist með hann niður grjótgarðinn og lagði varlega í vatnið.
Óskirnar þrjár
Þá tók þorskurinn til máls: “Blúbb, blúbb, blúbb, þetta var nú fallegt af þér, nú skal ég veita þér þrjár óskir.”
Stúlkan var vel gefin og áttaði sig strax á tækifærunum, sem fólust í þessu tilboði.
“Til að byrja með vil ég Vera geðveikt falleg og vel vaxin.”
“Blúbb, blúbb, blúbb,” sagði fiskurinn og viti menn - stúlkan varð falleg og íturvaxin eins og ugga væri veifað.
“Svo vil ég að ósamþykkta kjallaraholan mín breytist í lúxus-penthás íbúð í Skuggahverfi með útsýni Allan hringinn.
“Blúbb, blúbb, blúbb,” sagði þorskurinn, og glænýtt háhýsi reis upp í brekkunni fyrir ofan, með samþykktri deiliskipulagsbreytingu og öllu tilheyrandi.
“Að lokum vil ég að kötturinn minn breytist í fallegasta prins, sem nokkurn tíma hefur verið til.
“Blúbb, blúbb, blúbb,” sagði þorskurinn. “Farðu nú og líttu á nýja heimilið þitt.”
Stúlkan fór nú upp í nýja háhýsið, kom inn í nýju útsýnis-penthásíbúðina sína og mætti þar prinsinum sínum. Þorskurinn hafði nú heldur betur staðið sig vel! Ekki nóg með að þetta var glæsilegasti karlmaður, sem hún hafði nokkru sinni séð, heldur var hann búinn að leggja á borð, opna dýrindis vínflösku og bar nú fram ilmandi fiskrétt beint úr ofninum.
Að lokinni rómantískri máltíð með útsýni yfir sundin, bar prinsinn stúlkuna Inn í svefnherbergi og lagði hana á rúmið.
Hann lagðist svo við hliðina á henni og hún titraði af eftirvæntingu. En í stað þess að byrja að láta vel að henni, hringaði hann sig, lokaði augunum og virtist ætla að fara að sofa.
“Hvað er...,” hvíslaði stúlkan. “Ætlarðu ekki að….. Eigum við ekki að……”
“… Gera eitthvað ljúft og skemmtilegt?” sagði prinsinn. “Við hefðum sko heldur betur getað gert það - ef þú hefðir ekki látið gelda mig í fyrra.”

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.04.2008 13:15:54 / Rósa

Til hammó!

Til hamingju með flutningana Þóra og Maggi, hlakka til að fá boðskortið í innflutningspartýið;) Þið fáið pakka á fimmtudaginn:)

Luv....Rósa og Jói:*


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.03.2008 20:10:08 / nextstep

af því að ég er svo mikill snúllirass.....

þá skal ég blogga!! ;) hahah

  • Er aaalveg að fara að flytja! veijj!! :D styttist óðum :D
  • Fórum í gær og keyptum sófasett! veijjj gamaaan ;)
  • Gerði annars gott sem ekkert í páskafríinu! opnaði ekki bók!! en nú er ég smááf byrjuð að vera dugleg og reyna að ná þessum helv reikningsskilum! sjett það sem þetta er ekki að virka í hausnum á mér!!
  • ekki nema mánuður í próf! sjæse!
  • jú ég gerði nú eitthvað smá kannski um páskana....fór í sund á föstudaginn langa...og kíkti í smá hvítvín til rósu á páskadag....en ekki mikið meira en það!
  • uhhh hef ekkert að segja annars....nema ég er að fara að flytja! veijj ;)

                   :haha:knús:haha:á:haha:ykkur!! :haha::haha:Þóra :haha::haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.03.2008 14:01:21 / Rósa

Fokking vesen

Þar sem tölvan mín er með vírus og krassaði og Jóa tölva gæti hugsanlega verð með vírus ef ég kveiki á msn þá verður þetta samskiptaleiðin mín þangað til tölvudruslan mín verður tekin í gegn og löguð!!! FOKKING VESEN!!!
Það er hittingur í kvöld, hérna hjá mér. Be there or be elsewhere!!!

Update 23. mars kl. 01:18.

Tölvan mín er komin í lag....bara gleði gleði á mínum bæ. Borgaði einni konu 13 þúsund kall fyrir nýja harðan disk sem er helmingi stærri en sá gamli og fyrir vinnuna. Ekki amalegt það.

Bloggiði svo pjásurnar ykkar!!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 23:30:49 / Rósa

Æ kjíll jú!!!

Mér finnst þetta ALLTAF jafn fyndið!

http://youtube.com/watch?v=1uwOL4rB-go

-R-


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 22:34:51 / Rósa

Helgin

Helgin var ofsa fín:) Ég var full og vitlaus. Gerði samt ekkert af mér. Hitti æskuvinkonu mína í bænum, það var alveg æði, ætla sko að halda sambandi við hana. Svo var það spilakvöld og dinner hérna hjá okkur á laugardaginn. Horfðum á júróvisjón og drukkum aðeins með því. Er svo búin að vera að rotna úr þreytu í allan dag en meikaði samt að fara upp í skóla að hitta Evu og vinna aðeins í ritgerðinni okkar:) Svo var það bara matur hjá mömmu og pabba þar sem var étið á sig gat:)
Konudagurinn í dag. Já ég hafði náttla enga trú á Jóa en hann kom nú samt heim með geggjaðan blómvönd og brjálæðislega flott armband sem er SVO ÉG. Hann þekkir mig greinilega drengurinn og sagðist sko hafa skoðað alveg fullt þangað til hann valdi það því honum fannst það passa svo vel fyrir mig:)
Mig langar til útlanda. Langar til Barcelona, London eða Köben. Væri líka alveg til í að fara til Riga eða Prag eða eitthvað svoleiðis. Langar bara að fara eitthvað!!! Hver vill bjóða mér??? ;)
Ný vika á morgun með tilheyrandi rútínu; skóli, ræktin og lærdómur, jey....NOT!!!!
Dexter er byrjaður þannig ég er hætt í bili...
Knús á ykkur dúllur....

-R-


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 17:25:41 / nextstep

Mmm helgin var sko ljúúf :)

Ofsalega gaman að taka smá slúddz með jóku og bryndísi, enda ekkert smá langt síðan við hittumst alle sammen!! Vorum aðeins að sulla í hvítvíni...en ég var bara temmileg! ;) þynnkan frá síðustu helgi enn ofarlega í minni mér! ;)

Vorum að snúllast með litla barnið hennar jóku, hann Púmba :) er nú ekkkkki mikið fyrir nagdýr! Og tæplega það! En jeeeminn eini! Litla rasssgatið :P algjör mús sko:P

Fór svo í rekstrarhagfræðitíma á lau...hmmm engin Magga þar? Skammskammskamm!!

Svo héldum við maggi í sveitina í bústað...ummm þaaaað sem það er alltaf eitthvað næs að fara í bústað :)

Var að fá mér kort í worldclass:) mmm það sem það var gott að komast í almennilega stöð! Ekkert bilað eða ónýtt eða eitthvað fokk! Bara allt í orden! Very nice :D

Svo er það bara skólinn þessa vikuna.....fer að verða allsvakalega kreisí að gera!! næsta vika! Sjæse! Próf á fim og fös og skilaverkefni á sun! Svo fer að styttast fresturinn á ritgerðinni minni! Er að reynað rembast við að pína mig áfram! Meira hvað það getur verið erfitt.....

og svo á ég aaaammli eftir rúma viku;) uss haldiði það SÉ!! ;) er að ath með lau hvort það sé séns að mixa eitthvað smá gettogether....lets see!

Annars er ég að fara á þorrablót með familíunni hans pabba á fös...kræst þetta er nú meira helv fylleríið alltaf hreint!! ;)

en jæja rassgötin mín! Best að snúa sér aftur að ritgerðinni:)

Knús á ykkur!!

---Þóra----


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.02.2008 18:02:36 / Magga

goddeeeeem!

fokking blogcentral! vill ekki hleypa mér inná flex-flex né hér! svo ég hakkaði mig inná möggu user! muhahahaha  ;) sorry luv! ;) er búnað senda póst og fer kannski að komast aftur inn á mitt! haha :P
eníveis!!

Síðasta helgi?? deeeeem já deeem! Hahahaha!
Konukvöld Brimborgar á Rúbín á föstudaginn, dró rósu með mér og svo fengum við að bjóða möggu líka :D

Sigríður Klingenberg vinkona mín var veislustjóri og lét hún alla draga spáspil, jú fylgdi dráttur með hverjum aðgöngumiða einsog hún orðaði það;) tjahh skil eeengan veginn hvernig við gátum orðið svona MÖKK af 4 tíma streight hvítvínsdrykkju! Hahha sjett...svo fannst mér TILVALIÐ að hringja í söru og vekja hana fyrst hún átti afmæli! Sooorry bob :p hhaha shit endaði svo í glímu við klósettið! Læsti mig svo inná klóstinu hjá magga og lagði mig þar í svona klstund áður en ég fór inn í rúm og rotaðist! Hahah ojjjbarasta! Og þynnkan? Jább alveg fyrir ALLAN peninginn og rúmlega það!!! ojojojj!

Verst að ég gat ekkert bara verið þunn því svo var þorrablót Brimborgar um kvöldið! Sæææææll!! Þar var komið að Magnúsi Atla að vera illilega ofurölvi ásamt Jóhanni vini sínum og þar voru þeir dansandi grrrrimmt! Uppá borðum, hendandi glösum sín á milli og svona fínt eitthvað! Var mikið fegin að komast bara heim;) Hann fékk svo að smakka aðeins á þynnku daginn eftir blessaður!

Svo er ég búnað vera eitthvað hálftussó þessa vikuna, ekki veik, en samt svona drusluleg (what else is new??;)) og svo bara með LETI á háu stigi! Sjæse!

Ég Bryndís og Jóka ætlum að hittast í kveld í smá slúður! Lööööngu kominn tími á það, svona rétt rúmlega!! Ætlum að tékka á nýja pleisinu hennar jóku;) og kannski RÉTT að smakka hvítvín! En baaara smáf;)

Svo er rekstrarhagfræðitími í hádeginu og svo ætlum við í bústað til mömmu hans magga, er á apavatni! Ummm alltaf ágætt að fara í bústað og pottinn og svona :D

en jæja! Farið í rassgat og eigið góða helgi!!



 -----Þóra....leyniorðastelari;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.02.2008 18:04:42 / Rósa

Helgin einkenndist af....

  • Vondu veðri.
  • Blautum fótum.
  • Konukvöldi á Rúbín.
  • Freyðivíni, hvítvíni og bjór.
  • Áruhreinsun og labbi í gegnum vagínu Sigríðar Klingenberg.
  • Aðeins meira hvítvíni og meiri bjór.
  • Smá stoppi inná klósetti í keiluhöllinni.
  • Næstum því áfengisdauða.
  • Bulli um ryksugu.
  • Minnisleysi.
  • Svefn í fötum.
  • Fataleysi,
  • Aðeins meira minnisleysi.
  • Pizzuát.
  • Aðeins meira pizzuát.
  • Breezer.
  • Þorrablóti á Fjörukránni.
  • Vondum mat.
  • Fullum Jóa og ennþá fyllri Magga.
  • Fljúgandi glösum.
  • Smirnoff Ice.
  • Fullu fólki.
  • Aðeins meiri Smirnoff Ice.
  • Ennþá fullari Jóa og Magga.
  • Kaffi Aroma.
  • Kokteil sem leit út eins og uppþvottalögur:S
  • Tópasskot.
  • Aðeins meira tópasskot.
  • Ríðingum inná klósetti.
  • Trúnó með stelpu með gervihár.
  • Babl við einhverja tvo gaura sem héldu að ég væri skyggn.
  • Baráttu við Jóa svo hann myndi ekki skalla pizzastrákinn.
  • Beggu sætu sem keyrði okkur heim á nýja bílnum sínum;)
  • Jóa fullum sem var mjög hress þegar við komum heim.
  • KFC.
  • Kringlunni.
  • Senseo kaffivél.
  • Kjúklingabringum.
  • Bragðaref:P

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.02.2008 13:13:07 / Þóra

Margrét Ýr!!

hlunkastu í tíma skrópalína!! fruss...manni GETUR nú sárnað!!

 

 

;) 


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 15:43:45 / Magga

Last night....

Takk fyrir gærkvöldið elskurnar mínar.

Skemmti mér rosalega vel :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 17:44:01 / Rósa

Laugardagurinn

Caruso
 
Laugardaginn
 
Kl. 20:00.
 
Skylda að vera sætur, sexý og með góða skapið í töskunni;)
 
Verðum í bandi rassgötin mín8)

» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Heimsóknir
Í dag:  12  Alls: 54121
Dagsetning
28. janúar 2012
Klukkan